Löður hlaut viðurkenninguna “Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri” sem Viðskiptablaðið og Keldan veita.
.jpg)
Við hlutum á ný viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri, þriðja árið í röð.
Viðskiptablaðið og Keldan gefa árlega út lista yfir Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri. Til að komast á listann þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði sem meðal annars taka mið af afkomu, rekstrarlegum stöðugleika og eiginfjárhlutfalli. Aðeins hluti íslenskra fyrirtækja stenst þau viðmið og hlýtur viðurkenninguna.
Við erum afar stolt af því að hljóta þessa viðurkenningu þriðja árið í röð.
Hún er okkur mikilvæg staðfesting á traustum rekstri og því góða starfi sem starfsfólkið okkar vinnur á hverjum degi.