Jan 18, 2022

Gleðilegan Mottumars

Hlutfall af allri sölu í mars rennur til Krabbameinsfélagsins og á Mottudaginn 19. mars renna 20% af allri sölu til átaksins.

Gleðilegan Mottumars

Löður er stoltur styrktaraðili Mottumars sjöunda árið í röð. Í mars rennur hlutfall af allri sölu Löðurs óskert til Krabbameinsfélagsins og á Mottudaginn 19. mars renna 20% af allri sölu beint til átaksins.

Einkennisorð Mottumars í ár er „Enginn einn“, sem minnir á að enginn á að þurfa að takast á við krabbamein einn síns liðs. Á Íslandi greinast rúmlega þúsund karlmenn með krabbamein á hverju ári og með Mottumars er vakin athygli á mikilvægi stuðnings, fræðslu og forvarna. Framlög til átaksins styðja meðal annars við ráðgjöf, rannsóknir og þjónustu við fólk sem greinist með krabbamein og aðstandendur þeirra.

Með þátttöku sinni vill Löður leggja sitt af mörkum til þessa góða málefnis. Renndu við með bílinn í þvott hjá Löðri í mars og styrktu átakið í leiðinni.