Bílaþvottastöðin Löður

Löður hefur verið starfandi frá árinu 2000. Í janúar 2024 urðu þær breytingar á rekstri Löðurs að félagið var að fullu sameinað Orkunni, sem áður var eigandi Löður, og tók sameiningin gildi á sama tíma. Löður er með þvottastöðvar á Akureyri, Reykjanesbæ, Vestmannaeyjum og á höfuðborgarsvæðinu.

Næsta stöð
Löður´s XL car wash station in Einhella, 221 Hafnarfjordur

Stöðvar sem opnuðu 2024-2025

Við opnuðum 2024 á Einhellu í Hafnarfirði, bæði fyrir fólksbíla og stærri bíla/trukka, á Vesturlandsvegi í Reykjavík, í Vestmannaeyjum og á Akureyri. Í júní 2026 opnuðum við svo á Lambhagavegi í Reykjavík. Löður rekur því 12 staðsetningar í dag. Löður er leiðandi á markaði í bílaþvotti bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Félagið er í örum vexti og stefnir á að fjölga staðsetningum á næstu 1–2 árum.

Markmið Löðurs er að veita viðskiptavinum með ökutæki þjónustu með einföldum hætti og bjóða upp á umhverfisvænan bílaþvott þar sem kappkostað er að minnka kolefnisspor fyrirtækisins eins og hægt er. Okkar helsta markmið er að skilja eftir betri jörð fyrir komandi kynslóðir. Við munum reyna að standa okkur betur í dag en í gær með því að velja umhverfisvænni kosti fram yfir aðra kosti. Löður mun vinna markvisst að því að nota umhverfisvænar lausnir í framtíðinni.

Umhverfisvænni bílaþvottur

Við berum öll sameiginlega ábyrgð á okkar nánasta umhverfi. Hjá Löðri kappkostum við að minnka kolefnisspor fyrirtækisins eins og kostur er.

Við leggjum okkur fram við að gera bílaþvottastöðvar okkar eins umhverfisvænar og frekast er unnt. Þvottaplönum á bensínstöðvum fer hratt fækkandi á sama tíma og reglur um mengunarvarnir verða sífellt strangari.

Hugsum vel um grunnvatnið okkar!

Olíu- og sandskiljur eru á öllum þvottastöðvum Löðurs til þess að tryggja að olía eða olíumengað vatn, sandur og önnur spilliefni berist ekki út í umhverfið. Með því að þvo bílinn á bílaþvottastöð er ekki verið að menga grunnvatnið í kringum okkur. Við erum að taka fyrstu skrefin og viljum þess vegna upplýsa um mikilvægi þess að fanga spilliefni áður en þau fara í frárennsliskerfið okkar. Úrgangurinn sem myndast í skiljunum er sogaður upp og honum fargað af viðurkenndum móttökuaðilum. Ávinningurinn fyrir okkar viðskiptavini er umhverfisvænni bílaþvottur.

Umhverfisstefna Löður

Löður stefnir á að vera meðal fremstu fyrirtækja á Íslandi sem ná árangri í umhverfisvænni starfsemi. Löður flokkar allt til endurvinnslu; plast sem til fellur vegna starfsemi Löðurs er endurunnið hjá Pure North. Þegar bíll er þveginn hjá okkur er aðeins notaður þriðjungur af því vatni sem notað er við þvott á bíl með kústi á þvottaplani.

Okkar stefna er að bjóða upp á umhverfisvænan þvott á þvottastöðvum Löðurs og vinnum við náið með framleiðendum við að finna bestu mögulegu lausnir varðandi þvottaefni fyrir íslenskar aðstæður.