Svampburstastöðin á Fiskislóð gengur í gegnum umfangsmiklar breytingar.

Hér má sjá þvottagöngin tóm en miklar breytingar munu eiga sér stað.
Svampburstastöðin á Fiskislóð er að ganga í gegnum umfangsmiklar breytingar. Hér er ekki aðeins verið að endurnýja eldri búnað heldur byggja upp nánast nýja þvottastöð með nýjustu tækni, auknum afköstum og enn betri þvotti.
Framkvæmdirnar eru með þeim umfangsmestu sem ráðist hefur verið í hjá Löðri og þegar stöðin opnar aftur mun hún bjóða upp á þvottaupplifun sem áður hefur ekki sést hér á landi. Nánast allur búnaður stöðvarinnar verður endurnýjaður, nýjum þvottaþrepum bætt við og innleiddar tækninýjungar sem ekki hafa áður verið notaðar hér á landi.
Nýju þvottagöngin verða 55 metra löng og búin alls 16 burstum sem tryggja enn ítarlegri og vandaðri þvott. Þar á meðal eru nýir burstar sem hreinsa neðri hluta bílsins sérstaklega vel, auk öflugs búnaðar fyrir dekkja- og felguþvott.
Framkvæmdir standa nú yfir og stefnt er að því að opna stöðina aftur á næstu vikum. Við hlökkum til að taka á móti viðskiptavinum í gjörbreyttri þvottastöð og kynna allar þær nýjungar sem við munum bjóða upp á.
Þangað til er hægt að fara í snertilausu þvottastöðina og básana okkar á Fiskislóð en allar staðsetningar okkar er hægt að skoða hér.
Sjáumst í lööðrandi stuði!