
Löður er stoltur styrktaraðili Mottumars sjöunda árið í röð. Í mars rann hlutfall af allri sölu til Krabbameinsfélagsins og á sjálfan Mottudaginn, 19. mars, rann 20% af allri sölu til átaksins. Heildarstyrkur Löðurs til Krabbameinsfélagsins í ár nemur 1,5 milljónum króna.
Mottumars er árlegt fjáröflunarátak sem leggur áherslu á heilsu karla og mikilvægi forvarna, fræðslu og stuðnings. Einkennisorð átaksins í ár, „Enginn einn“, undirstrikar mikilvægi þess að enginn þurfi að takast á við krabbamein einn. Framlög til Mottumars styðja meðal annars við ráðgjöf, rannsóknir og þjónustu við einstaklinga sem greinast með krabbamein og aðstandendur þeirra.
Löður þakkar öllum sem lögðu sitt af mörkum og hlakkar til að halda áfram að styðja við átakið á komandi árum💙