Löður er stoltur styrktaraðili Mottumars 2024 og heldur hátíðlega upp á mánuðinn, af því tilefni verður Löður með mikið í gangi í mánuðinum og við hvetjum viðskiptavini að fylgjast vel með!
Föstudaginn 22. mars er Mottudagurinn sjálfur, sem er hápunktur Mottumars átaksins. Löður hefur tekið þátt í Mottumars með ýmis uppákomum en á Mottudaginn sjálfan mun Löður gefa 20% af allri sölu dagsins til málefnisins. Söfnunin gildir á öllum 15 þvottastöðvum Löðurs og því auðvelt að renna við, styrkja gott málefni og þvo bílinn í leiðinni.
„Við hjá Löður styðjum átakið með miklu stolti enda fimmta árið okkar í samstarfi," segir Brynja Guðjónsdóttir, markaðsstjóri Löðurs
Auk söfnunarinnar á Mottudaginn mun andvirði allra mottuþvotta á þvottastöðvum Löðurs á Fiskislóð 29, Dalvegi 22 og Fitjum í Reykjanesbæ renna óskert til Krabbameinsfélagsins í marsmánuði. Við setjum út að Mottuþrifin kosta 1.000 krónur, en það er þó alveg frjálst framlag og því einfalt að leggja málefninu lið á meðan maður hreinsar slabbið úr bílamottunum eftir veturinn í leiðinni.
Löður er einnig viðurkenndur söluaðili fyrir Mottumarssokkana og hægt er að kaupa sokkana á Fiskislóð, Dalvegi og Fitjum fyrir 3.500 krónur. Mottumarssokkarnir eru hannaðir af As we grow í ár og kaup á þeim er frábær leið til að styrkja baráttu Krabbameinsfélagsins.
Starfsmenn og aðrir mottuhafar hjá Löður eru nú þegar byrjaðir að safna í yfirvaraskegg til að taka þátt í Mottukeppninni, sömuleiðis settu þeir sig í hlaupagírinn og störtuðu mánuðinum með mottumarshlaupinu 29. febrúar.
Við hlökkum til að taka þátt í þessu verðuga málefni og erum spennt að sjá allar motturnar renna við hjá okkur.
Komdu í áskrift!
Opnunartímar
Virkir dagar 8-19
Komdu í áskrift!
Opnunartímar
Virkir dagar 8-19